Ađalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

Teljari

Tenglar

52 bćkur, bćkur 1-3Valgerđur Fjóla Einarsdóttir

FerđabloggValgerđur Fjóla Einarsdóttir

Jæja hvað segir maður, 26.apríl þegar ég bloggaði seinast:S

Skólinn gekk mjög vel, öllu náð með glans auðvitað:) Núna er ég á fullu í sumarfjarnáminu, er að taka 15 einingar þar. Ætlaði að taka mun meira en ríkið á víst í erfiðleikum með að greiða með nemendum í fjarnámi svo það hefur þurft að skerða það allverulega.

Allavega, þá blogga ég núna frá Lúxemborg! Hún Sandra vinkona er aupair hérna og ég ákvað með 5 daga fyrirvara að skella mér til hennar í viku. Kom í gær sem sagt. Þetta er þá í fyrsta sinn sem ég fer frá Illuga í eitthvað ferðalag, fyrir utan eina þjóðhátíð, hann fer náttúrulega alltaf frá mér allavega einu sinni á ári með boltanum en núna er ég bara að skilja aumingjans kallinn minn eftir haha
Allavega þá á ég eitthvað voðalega erfitt með svefn, það munar náttúrulega 2 tímum á Íslandi og Lúx. Ég lá andvaka í allavega klukkutíma í gærkvöldi, varð þá frekar lítil og saknaði Illuga míns en það var ekkert sem að stutt símtal gat ekki lagað. Svo vaknaði ég í nótt að deyja úr súrefnisskorti eiginlega, það er náttúrulega svo rakt úti hérna en þetta vonandi venst.
Annars er klukkan 9 að staðartíma og ég er að bíða eftir að Sandra verði búin með það sem hún þarf að gera, þá ætlum við að reyna að kíkja aðeins á miðbæinn áður en það þarf að sækja strákinn í skólann.

En ég ætla að sjá hvort ég geti ekki lagt mig í svona klukkutíma;)

Fjóla

Lćra, lćra, lćra, lćra....Valgerđur Fjóla Einarsdóttir

Þar sem að ég ætti að vera að læra ákvað ég að blogga smá:p

Þetta er vinnuhelgin mín, en ég ligg heima með smá pest, verð fljótt komin á lappir aftur:)

Prófin byrja í næstu viku og ég fer í þó nokkur:S Prófataflan mín er svona

mán. 4. maí - BÓK 203
þri. 5. maí - STÆ 202
mið. 6.maí - NÁT 103 - fjarnám
fim. 7.maí - HAG 103
Föst 8. maí - ENS 373 og VIÐ 114, sem ég ætla að láta færa
Mán 11.maí - ÍSL 303
Mið 13.maí - VIÐ 114, fært frá föstudeginum.

þau eru sem sagt öll í röð, engir dagar á milli, en það er kannski bara ágætt þá verð ég búin fyrr! Hefði náttúrulega verið búin 11.maí en af því ég færði markaðsfræðina klára ég 13.maí.

Í sumar verð ég í fjarnámi, ákvað að vera ekki að vinna, ætla bara að halda mínu hlutastarfi í Zara og vera í ca. 18 einingum í skólanum. Þannig næ ég líka að klára af öllum líkindum næsta vor, eða s.s. vorið 2010! JEIJ!

Annars er ég allt í einu sjúk í að eignast íslenskan þjóðbúning, veit ekki af hverju, en það er einhver svona þörf hehe Langar að vera í svoleiðis á útskriftinni minni

Svo kaus ég í gær! Ákvað að nenna ekki að kjósa seinast, en skellti mér í gær, og mitt x fór við B! Leist best á þá, hefði ekki látið mér detta það í hug að kjósa vinstri græna eða samfylkinguna! never ever! Hann pabbi minn sagði mér líka að Ragnar afi hefði orðið sáttur með mig og mitt atkvæði þar sem framsókn var hans flokkur, svo hana nú!

En ég ætla að leggjast í Egils sögu, seinasta hlutaprófið í henni á morgun... jibbý!

Fjóla

Long time no blogg....Valgerđur Fjóla Einarsdóttir

Já fannst kominn tími á eitt stykki blogg! :)

Seinast þegar ég skrifaði eitthvað var ég að fara í lokapróf í hávamálum og völuspá, sem gekk súper vel, 9,1 þakka þér kærlega! Var hæst í hópnum, mega sátt:)

Annars er ég að taka þátt í Fyrirtækjasmiðju Ungra Frumkvöðla, minn hópur stofnaði fyrirtækið Orðlaus, sem er frum íslensku kennslu forrit fyrir nýbúa á Íslandi og er á 4 tungumálum:) www.ordlaus.is
Við allavega tókum þátt í árlegri vörumessu í Smáralind og vorum þar á föstudegi og laugardegi að kynna okkar vöru. Svo var verðlauna afhending á laugardeginum og viti menn, fengum við ekki verðlaun fyrir besta básinn:) Sem var alveg ótrúlega gaman, svo er önnur verðlauna afhending núna 24.apríl, þá kemur í ljós hver fer til Rotterdam í júlí og tekur þátt í Evrópukeppninni:) Allt alveg voðalega spennandi... allir að kíkja á www.ordlaus.is

Páskarnir hafa verið yndislegir þrátt fyrir mikla vinnu, við Illugi skelltum okkur í bústað á skírdag og komum aftur á föstudaginn langa, það var mjög kósí:) Hef annars bara verið að ná upp svefni og haft það kósí.
Nema í dag, þá tók ég mig til og var rosalega dugleg! (fyri utan að vakna ekki fyrr en að verða hálf 1!) En ég kláraði bókfærslubókina mína, ég þurfti þess ekkert en ég er að vonast til að fá að taka lokaprófið fyrr af því að öll prófin mín eru í sömu vikunni:S En já, eftir að ég kláraði hana ákvað ég að fara í Líffræðina, er búin að vera að slóra svolítið í fjarnámi og þarf að ná svolítið upp, en ég kláraði heila lotu og tók kaflapróf!

Eftir það allt saman hjóluðum við Illugi inn í Leirvogstungu og létum okkur dreyma um að búa þar. Þvílíkt fallegt þarna, alltaf hestar að koma fram hjá húsunum, alveg inn í svona vogi þannig að það var alveg logn... mmmm alveg yndislegt. En það er víst orðin draumurinn að búa þar(eins og er hehe), þó svo að þetta sé rosalega langt.

Nú er ég komin heim og búin í sturtu og ætla að fara að klára næstu lotu í Líffræði áður en ég borða humar og kjúkling:)

kveðja
Fjóla - aktíva:)

Ţjáist af letiValgerđur Fjóla Einarsdóttir

Jæja það er víst allt allt of langt síðan ég lét heyra í mér seinast....

Er farin að halda að ég þjáist af krónískri leti... vill fátt annað gera en að sofa... búin að vera að mæta frekar illa í skólann en það virðist ekki koma niður á mér í lærdómnum:) Fór í 2 próf núna fyrir stuttu, fékk 8,7 í hagfræði og var hæst í hópnum í bókfærslu með 9,3 með 1 villu:D Annars hef ég einhvernveginn svo mikin áhuga á því sem ég er að læra núna... ef við drögum stærðfræðina frá það er að segja... gæti ælt yfir þessari leiðindarstærðfræði. Er einmitt alveg hugfangin af Völuspá núna, sem ég er að læra í íslensku, langaði einmitt að henda inn einu erindi úr henni...

Sól tér sortna,
sígur fold í mar,
hverfa af himni
heiðar stjörnur.
Geisar eimi
við aldurnara,
leikur hár hiti
við himin sjálfan.

Þetta er semsagt lýsing á því hvernig heimurinn ferst í ragnarrökum, finnst þetta svolítið eins og ég myndi ímynda mér kjarnorkusprengingu... en bara svona að segja þá er þarnæsta erindi á eftir þessu mjög fallegt, þar er því lýst hvernig jörðin rís úr sæ aftur:)

En ég kíkti á hana Söndru mína áðan, hún var að eiga lítin sætan strák sem er algjör bolti... mega sætur:)

Verð líka að tala um það hvað ég var ótrúlega dugleg í gær fyrst ég var að tala um hvað ég væri löt! Fór í skólan og svo í sund... gerði svo 2 stór verkefni í markaðsfræði á nó time og þreif svo brumma sæta! Mega dugleg!!

En ég er alveg í vandræðum, á að skila í ensku á morgun lítilli grein um einhvern íslenskan stjórnanda og af hverju mér finnst hann/hún ekki vera starfi sínu hæf/ur eða af hverju mér finnst hann/hún mjög hæf/ur.
Málið er að ég hef bara enga skoðun á þessum stjórendum lengur... er að spá í að skrifa um Jóhannes í bónus, hef ekkert slæmt um hann að segja:P heheh

Segi þetta gott í bili
Fjóla

Gleđilegt árValgerđur Fjóla Einarsdóttir

Gleðilegt ár allir saman:)

Ég er hálf dofin öll í líkamanum, það var svo brjálað að gera í vinnunni um helgina að það var ekki einu sinni fyndið! Kom svo í fréttunum á stöð 2 í gær og læti... ekki alveg nógu sátt..eeen svona eru þessir æsifréttamenn, snarbilaðir...

Annars fékk ég stundatöfluna mína í gær, hún mætti nú vera aðeins skemmtilegri ef ég á að segja alveg eins og er... þvílíkt götótt, gæti komið heilu fagi í viðbót í hana, ætla að fara niðureftir á morgun og sjá hvort ég geti ekki breytt henni aðeins.

Svo er ég búin  að sjá draumaíbúðina mína, ég óska þess á hverjum morgni að það bíði póstur eftir mér frá lögfræðingnum... en ekkert heyrist... vildi hálf partinn óska að hún myndi bara seljast svo ég gæti hætt að spá í henni... úff..

En... ég ætla að fara að finna mér eitthvað að borða hérna... þarf víst að leita vel... mamma ákvað að sjóða slátur í matinn.. gubb....

Fjóla

JólabloggValgerđur Fjóla Einarsdóttir

Jæja, ætlaði bara að henda inn einu jólajólabloggi

Er búin að vera að vinna og vinna en var í fríi í dag og verslaði og verslaði... :P Svo er ég að vinna á morgun frá 10 til 1...og svo eru bara jólin! hehe

En ég óska ykkur gleðilegra jóla:)

Fjóla

p.s. er að hlusta á bubba tónleikana á bylgjunni og hann er að taka Rómeó og júlíu og ég er með tárin í augunum og hroll eftir bakinu...geggjað!

Búin í prófum...oooog einkunnirnar komnar:DValgerđur Fjóla Einarsdóttir

Jæja, ég kláraði prófin á mánudaginn, og mér gekk bara ágætlega:D Var að fá einkunnirnar og þær komu bara svona vel út:)

Bókfærsla 10
Íslenska 9
Saga 8
Spænska 8
Stærðfræði 8
viðskiptalögfræði 9

Svo í fjarnáminu
íþróttafræði 9
Félagsfræði 6 - fékk samt 8 í prófinu, en var lækkuð niður í 6 af því að ég skilaði ekki ritgerð... en ég náði:D

Þarna eru s.s. komnar 22 einingar, sem ég á:D jeiiij þetta verður vonandi áfram jafn góður dagur:)

Jæja, ætla að undirbúa mig fyrir vinnu...

Fjóla

4/8 hálfnuđValgerđur Fjóla Einarsdóttir

Jæja, nú er ég búin með 4 próf af 8, vúhú... er búin með stærðfræði, bókfærslu, íþróttafræði og sögu á eftir íslensku, spænsku, félagsfræði og lögfræði...
Svo er fyrsta lokaeinkunin mín komin í hús, 9 í íþróttafræði thank you very much, örugglega hæsta einkunn sem ég hef fengið í íþróttum á ævi minni!

Ég ætti að vera að lesa aðeins í félagsfræði núna eeeen... ég nenni því engan veginn:s óþolandi að detta í letikast í prófunum:S

Ég er svo búin að versla 8 og 1/2 jólagjöf:)... af 21:( Reyndar er ég komin langt á leið með fjölskylduna mína, en fjölskyldan hans Illuga er eftir... úff.. þar byrjar það að vera erfitt.

Svo eins og flest jól á undan ætla ég að vera með naglatilboð fram að jólum, ég reyni að gera þær á morgnanna því að ég er að vinna á kvöldin:/ byrja næsta þriðjudag, 4000 kr. ásetning með french og hver veit nema ég bæti við smá skrauti pro bono:)

En ég ætla að fá mér að borða og lesa svo allavega 5 kafla í félagsfræði! Eftir það má ég gera eitthvað skemmtilegt hehe

Síjú

Fjóla

2/8 allt ađ gerastValgerđur Fjóla Einarsdóttir

Jæja!
Er það ekki svona skylda ef maður er námsmaður að blogga á meðan maður er í prófum? Heyrði það eitthversstaðar...

Allavega þá eru fyrstu 2 prófin mín búin, fór í fyrsta á föstudaginn og það var bókfærsla, gekk bara sæmilega að ég held. Í dag var svo sagan, hún var pínu erfiðari en gekk samt bara ágætlega, að vísu voru svona skilgreiningar sem voru leiðinlegri en ALLT! úff...

Ég ætti með réttu að stija sveitt yfir íþróttafræði eeeen ég nenni því ekki, leiðinlegasta fag EVER! Svo var hann Óli að fá Need for speed undercover og við Illugi erum búin að liggja svolítið yfir honum hehehe

En núna sit ég og skanna netið að hluta á jólalög! Mega kósí... en ég ætla að fara að klára að lesa þessa blessuðu íþróttafræði... úff...

Fjóla
Síđa 1 af 8

Innskráningar kubbur